Broste Nordic Vanilla Budda skál Ø21×7,5 cm

Falleg skál sem hentar vel fyrir hvers kyns meðlæti eða jafnvel undir salat fyrir einn

Vörunúmer 14533446 Flokkur: Merkimiði:
Lýsing

Glæsilegt útlit Nordic Vanilla línunnar er ljóst og fallegt, líkist helst mjúkum vanilluís sem er örlitið flekkóttur af vanillubaunum. Áreynslulaust og fallegt útlit línunnar er fullkomlega í takt við fagurfræði Broste Copenhagen; af hverju að flækja hönnun of mikið þegar einfaldasta útlitið er oft líka það fágaðasta?
Matarstellið er framleitt úr gljáðum steinleir.

Frekari upplýsingar
LiturDrapplitaður
LögunHringlaga
Tegund
Söluflokkur
Vörumerki
Vörulína
Vörusafn
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll. Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn. Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum. Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.