Broste Nordic Sea diskur ferkantaður 12,5×35 cm

Nordic matarstellin er ein vinsælasta vara Broste Copenhagen. Útlit Nordic sea er hannað undir áhrifum frá norrænum strandlengjum þaðan sem gráblái liturinn kemur. Stellið er handgert og því hver hlutur sérstakur. Rákirnar eru allar handmálaðar og leirinn er „lifandi“ steinleir sem tekur á sig blæbrigði árstímans þar sem ýmislegt getur haft áhrif á umhverfið; svo sem hitastig, loft og vatn (þótt uppskriftin sé alltaf sú sama).

Vörunúmer 14531568 Flokkur: Merkimiði:
Lýsing

Ferkantaður diskur 12,5×35 cm úr Nordic Sea línunni frá Broste Copenhagen.
Stílhreinn og eftirtektarverður diskur úr handgljáðum steinleir með grábláum tónum og náttúrulegri áferð sem gefur borðhaldinu hlýlegt yfirbragð. Engin tvö stykki eru eins – hver diskur er einstakur. Tilvalinn fyrir smárétti, sushi, forrétti eða sem skrautlegt framreiðslufat.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 12.5cm x B: 35cm x H: 2.5cm
LiturBlár
LögunFerhyrningslaga
Tegund
Söluflokkur
Vörumerki
Vörulína
ÖrbylgjuofnJá
UppþvottavélJá
Vörusafn
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll. Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn. Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum. Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.