Broste Bubble kampavínsglas
Skráðu þig inn til að sjá verð
Fallegt kampavínssglas úr Bubble línunni sem er handgerð og munnblásin
Lýsing
Bubble glerlínan er handgerð og munnblásin. Þetta ferli felur í sér að hita fljótandi gler og setja það í mót, þar sem þjálfaður glerblásari mótar glerið með því að nota blástursrör. Við framleiðsluna myndast örsmáar loftbólur innan í glerinu sem gera það einmitt svo sérstakt Hvert glas ber því einstaka eiginleika í smávægilegum breytingum á lit, stærð, og þykkt. Glösin þola uppþvottavél .
Frekari upplýsingar
| Litur | Glær |
|---|---|
| Tegund | Glös, Kampavínsglös, Vínglös |
| Söluflokkur | Veitingastaðir |
| Vörumerki | Broste Copenhagen |
| Vörulína | Bubble |
| Vörusafn | Allt fyrir borðhaldið, Brúðkaupsgjafir |
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll.
Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn.
Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum.
Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.
