Kare Mrs Poodle stytta gyllt 34cm

Þessi glæsilega skrautstytta af poodle hundi er fullkomin fyrir alla sem elska þessa fallegu hundategund.

Vörunúmer 55292 Flokkur:
Lýsing

Gullitaða áferðin gefur styttunni glamúrlegt yfirbragð og gerir hana að áberandi skrautmun sem setur stíl og karakter á heimilið. Hún passar sérstaklega vel þar sem lúxus og leikandi hönnun fá að njóta sín. Styttan er handunnin og því er hvert eintak einstakt. Hún hentar vel á hillu, hliðarborð eða kommóðu og er einnig skemmtileg skrautlausn fyrir hundasnyrtistofur eða aðra staði þar sem hundar eru í aðalhlutverki.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 14cm x B: 32cm x H: 34cm
Tegund
Vörusafn
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.