Kare Hero dog vegglampi 44cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Skemmtilegur vegglampi sem sameinar lýsingu og húmor á einstakan hátt.
Vörunúmer
57737
Flokkur: Ljós
Lýsing
Sjarmerandi hundur í gylltum bol heldur á kúlulaga glerhlíf sem dreifir mjúkri og notalegri birtu um rýmið. Lampinn er bæði skrautlegur og hagnýtur og verður strax að eftirtektarverðu smáatriði á veggnum. Hentar vel í forstofu sem skemmtileg móttaka fyrir gesti, við rúmið sem stemningsljós eða í stofu sem frumleg hönnunar vara.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 18.5cm x B: 17cm x H: 44cm |
|---|---|
| Pera | Fylgir ekki |
| Tegund | Veggljós |
| Vörusafn | Brúðkaupsgjafir, KARE – Húsgögn |
| Perustæði | E27 |
| Max W | 40W |
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.
