Broste Nordic Vanilla sósuskál 40cl
Skráðu þig inn til að sjá verð
Nordic Vanilla sósuskálin sameinar klassíska lögun, norrænan einfaldleika og handverkslegt yfirbragð í fallegri heild.
Vörunúmer
14533514
Flokkur: Borðhald
Lýsing
Mjúki vanillukremaði liturinn ásamt fíngerðum doppum og endurunni gljáinn gefur skálinni náttúrulegt og lifandi útlit þar sem hvert eintak verður örlítið einstakt. Skálin er gerð úr steinleir og hefur mjúka, elegant lögun með þægilegu handfangi og hellistút sem gerir hana bæði fallega og praktíska í notkun. Fullkomin fyrir sósur, dressingar eða jafnvel sem lítið framreiðsluker fyrir mjólk eða rjóma.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 18cm x B: 9cm x H: 10cm |
|---|---|
| Vörumerki | Broste Copenhagen |
| Tegund | Vanilla |
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll.
Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn.
Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum.
Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.
