Broste Manderin/vanillu ilmkerti 7,4×8,3cm hvítt
Skráðu þig inn til að sjá verð
Ilmkerti sem fyllir rýmið af hlýlegum og notalegum ilm af mandarínu og vanillu.
Vörunúmer
45800219
Flokkur: Kerti & Ilmur
Lýsing
Kertið er úr ilmandi sojavaxi og kemur í einföldu, glæsilegu gleríláti sem passar vel inn í flest heimili. Hentar jafnt í stofu, svefnherbergi eða baðherbergi þar sem það bætir bæði ilm og stemningu. Falleg gjafahugmynd eða lítil lúxus viðbót í daglegt líf.
Brennslutími 33 klt
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 7.4cm x B: 7.4cm x H: 8.3cm |
|---|
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll.
Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn.
Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum.
Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.
