Broste Eco teljós S/9 hvít
Skráðu þig inn til að sjá verð
Klassísk og umhverfisvæn teljós sem skapa hlýja og notalega stemningu. Framleidd úr hreinu steríni sem tryggir hreinan og jafnan bruna.
Vörunúmer
46703411
Flokkur: Kerti & Ilmur
Lýsing
-
Svansmerkt (Scandinavian eco-label)
-
100% hreint sterín
-
Engin viðbætt ilm- eða lyktarefni
-
Umhverfisvænt litunarferli
-
Vottaður Oeko-Tex® kveikur
-
Framleidd með endurnýjanlegri orku
-
Framleidd innan ESB
-
Umhverfisvæn og vönduð kerti sem sameina gæði og sjálfbærni
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 3.8cm x B: 3.8cm x H: 2.4cm |
|---|---|
| Vörumerki | Broste Copenhagen |
| Tegund | Kerti |
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll.
Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn.
Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum.
Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.
