Broste Florentina vasi beige H:44cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Glæsilegur og áberandi vasi sem sameinar mjúkar, lífrænar línur og nútímalega hönnun.
Vörunúmer
14445445
Flokkur: Skrautmunir
Lýsing
Breiður, bylgjóttur kanturinn gefur vasanum einstakan karakter og gerir hann að fallegum miðpunkti í rýminu. Vasinn er úr hágæða steinleir með glansandi áferð í hlýjum beige lit sem passar vel inn í bæði nútímaleg og klassísk rými. Fullkominn fyrir stórar blómaskreytingar eða sem sjálfstætt skraut. Tilvalinn á gólf, skenk eða stórt borð þar sem hann fær að njóta sín.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 33cm x B: 33cm x H: 44cm |
|---|---|
| Vörusafn | Brúðkaupsgjafir |
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll.
Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn.
Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum.
Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.


