Kare Quiet face stytta

Stytta úr pólýresíni. 37 cm á hæð.

Vörunúmer 53684 Flokkur:
Lýsing

Þessi fallega skrautgríma er ekki aðeins nútímaleg og stílhrein, heldur einnig táknræn áminning um augnablik kyrrðar. Á heimilinu geislar hún frá sér hugleiðsluró og yfirvegun, en á skrifstofu eða í biðrými veitir hún hljóðláta áminningu um að halda ró sinni.
Hönnunin sækir innblástur í klassískar marmarastyttur, en létt efnisval gerir gripinn mun meðfærilegri og nútímalegri. Skrautgríman nýtur sín einstaklega vel ein og sér á hillu eða skenk, en einnig sem hluti af fallegri samsetningu samsvarandi listmuna. Hún verður án efa áberandi augnayndi í rýminu.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 0cm x B: 0cm x H: 31cm
Tegund
Vörumerki
Vörusafn
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.