Kare Dining dog stytta m/bakka hvít/gyllt
Skráðu þig inn til að sjá verð
Heillandi stytta í kremhvítum lit sem kemur með skemmtilegan karakter inn á heimilið.
Vörunúmer
58845
Flokkur: Skrautmunir
Lýsing
Hundurinn situr prúður og heldur á bakka eins og hinn fullkomni litli þjónn – bæði skrautmunur og skemmtilegt augnayndi sem vekur athygli. Kremhvítt yfirbragðið og gylltur bakkinn skapa fallega blöndu af húmor og elegans. Flott á skenk, hliðarborð eða í forstofu, þar sem hundurinn getur tekið á móti gestum með stæl.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 19cm x B: 21.5cm x H: 28cm |
|---|
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.


