Lýsing
Smá tákn og mynstur sem þekja yfirborð bjarnarins gefa styttunni skapandi og nútímalegan karakter sem fellur einstaklega vel að naumhyggjulegum og stílhreinum innréttingum. Hvort sem hún stendur á hillu, kommóðu eða hliðarborði verður hún sannkallaður miðpunktur rýmisins. Handgerð vinnsla tryggir að hvert eintak er einstakt og hefur sinn eigin sjarma, sem gerir styttuna að sérstöku hönnunarverki og eftirminnilegri gjöf.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 11cm x B: 16.5cm x H: 54cm |
|---|
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.



