Kare Bella spegill 30x180cm svartur rammi
Skráðu þig inn til að sjá verð
Bella spegillinn er stílhreinn og tímalaus spegill sem fellur vel að fjölbreyttum innréttingastílum. Einföld rétthyrnd lögun, mjúklega rúnnuð horn og fíngerður rammi skapa létt og fágað yfirbragð sem gerir spegilinn að fallegri viðbót við hvaða rými sem er.
Vörunúmer
85462
Flokkur: Veggmunir
Lýsing
Stór spegilflöturinn gerir Bella tilvalinn sem spegil í forstofu, svefnherbergi eða fataherbergi. Grönn hönnunin gerir hann jafnframt praktískan þar sem pláss er takmarkað. Spegillinn hentar einnig einstaklega vel í stofu, til dæmis yfir sófa eða skenk, þar sem hann endurkastar birtu og getur látið rýmið virðast stærra og bjartara.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 2.5cm x B: 30cm x H: 180cm |
|---|
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.
