Moomin krús Adventure move

Adventure Move bollinn er innblásinn af sögunni Halastjarnan kemur eftir Tove Jansson, þar sem Múmínálfurinn og Snorkstelpan leggja af stað til að komast að því hvers vegna íbúar Múmíndals eru skyndilega að yfirgefa heimili sín.

Vörunúmer 5111006331 Flokkur:
Lýsing

Fljótlega komast þau að ógnvekjandi sannleika – halastjarna stefnir í átt að jörðinni og gæti lent hvenær sem er. Múmínfjölskyldan leggur því af stað í leit að öruggum stað og finnur helli þar sem þau geta leitað skjóls á meðan þau bíða eftir því sem verða vill. Á bollanum má sjá Múmínálfinn, Snorkstelpuna, Litlu Míu og fleiri kunnuglegar persónur úr Múmíndal á leið sinni í gegnum óvissuna.

Frekari upplýsingar
LiturGrár
Vörumerki
Tegund
Vörulína
Vörusafn
Um vörumerkið
Hinar sívinsælu Múmín vörur eru framleiddar af Arabia, dótturfyrirtæki Iittala. Heimur Múmínálfanna var búinn til af Tove Jansson á árunum 1945 til 1970, en hún sótti innblástur í eigið líf, fjölskyldu og vini. Einhverjir í kringum hana voru fullir af ást og gleði á meðan aðrir voru örlítið fúlir og elskuðu einveru. Allir þó frábærir á sinn hátt! Árlega koma nýjar vörur í takmörkuðu magni sem enginn Múmínaðdáandi má láta framhjá sér fara.