Moomin djúp skál 15cm Mymble
Skráðu þig inn til að sjá verð
Listakonan Tove Slotte hefur hér endurgert upphaflegu Moomin teikningarnar frá Tove Jansson af mikilli snilld. Skálarnar eru úr postulíni og þola uppvottavél. Þvermál skálanna er 15 cm og hæðin er 5,5 cm en nokkrar skálar fást einnig stærri.
Vörunúmer
5111005580
Flokkur: Borðhald
Lýsing
Falleg myndskreytingin fangar bæði sjálfstæði hennar, lífsgleði og þá rómantísku hlið sem gerir Mymblu að einni af eftirminnilegustu persónum Múmínheimsins. Á þessari róslitaðu Mymblu-skál er hún klædd í fallegan ballettbúning sem undirstrikar draumkennda og rómantíska persónu hennar. Mymbla er yfirleitt með hárið bundið upp í hnút.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 15cm x B: 15cm x H: 5.5cm |
|---|---|
| Vörumerki | Moomin |
| Tegund | Skálar |
| Vörulína | Moomin skálar |
| Vörusafn | Allt fyrir borðhaldið |
| Litur | Bleikur |
Um vörumerkið
Hinar sívinsælu Múmín vörur eru framleiddar af Arabia, dótturfyrirtæki Iittala.
Heimur Múmínálfanna var búinn til af Tove Jansson á árunum 1945 til 1970, en hún sótti innblástur í eigið líf, fjölskyldu og vini. Einhverjir í kringum hana voru fullir af ást og gleði á meðan aðrir voru örlítið fúlir og elskuðu einveru. Allir þó frábærir á sinn hátt!
Árlega koma nýjar vörur í takmörkuðu magni sem enginn Múmínaðdáandi má láta framhjá sér fara.
