Moomin djúp skál 15cm Thingumy&Bob Green

Thingum og Bob eru eitt óaðskiljanlegasta tvíeyki Múmínheimsins. Þessar litlu og dularfullu verur fara hvert sem er saman og tala sitt eigið tungumál sem fáir aðrir skilja. Þrátt fyrir smæð sína eru þau bæði hugrökk og ákveðin og eiga stóran þátt í einni eftirminnilegustu sögu Múmíndalsins.

Vörunúmer 5111025548 Flokkur:
Lýsing

Þegar Múmínfjölskyldan kynnist þeim eru þau með dularfulla ferðatösku sem þau gæta af mikilli kostgæfni. Á þessum græna Thingum and Bob Múmínbolla hafa þau loksins ákveðið að sýna innihald töskunnar. Þar leynist Konungsrúbíninn – risastór og glóandi gimsteinn sem allir þrá að eignast.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 15cm x B: 15cm x H: 5.5cm
Vörumerki
Tegund
Vörulína
Vörusafn
Um vörumerkið
Hinar sívinsælu Múmín vörur eru framleiddar af Arabia, dótturfyrirtæki Iittala. Heimur Múmínálfanna var búinn til af Tove Jansson á árunum 1945 til 1970, en hún sótti innblástur í eigið líf, fjölskyldu og vini. Einhverjir í kringum hana voru fullir af ást og gleði á meðan aðrir voru örlítið fúlir og elskuðu einveru. Allir þó frábærir á sinn hátt! Árlega koma nýjar vörur í takmörkuðu magni sem enginn Múmínaðdáandi má láta framhjá sér fara.