Moomin krús Snufkin Green

Snúður er auðþekkjanlegur á græna hattinum sínum með breiðu barði, pípuna og þeim heimspekilegu vangaveltum sem hann deilir gjarnan með vinum sínum.

Vörunúmer 5111015561 Flokkur:
Lýsing

Hann er frjáls andi sem kýs einfalt líf í sátt við náttúruna og ferðast um heiminn eftir eigin höfði. Mía litla er hálfsystir hans, þótt þau séu ólík að skapgerð. Á þessum græna Snúðs-bolla sjáum við Snúð sjálfsöruggan og afslappaðan í sínum einkennandi klæðnaði. Hann endurspeglar frelsisþrá, sjálfstæði og þá rólegu visku sem hefur gert hann að einni af ástsælustu persónum Múmínheimsins.

Frekari upplýsingar
Vörumerki
Tegund
Vörulína
Vörusafn
LiturGrænn
Um vörumerkið
Hinar sívinsælu Múmín vörur eru framleiddar af Arabia, dótturfyrirtæki Iittala. Heimur Múmínálfanna var búinn til af Tove Jansson á árunum 1945 til 1970, en hún sótti innblástur í eigið líf, fjölskyldu og vini. Einhverjir í kringum hana voru fullir af ást og gleði á meðan aðrir voru örlítið fúlir og elskuðu einveru. Allir þó frábærir á sinn hátt! Árlega koma nýjar vörur í takmörkuðu magni sem enginn Múmínaðdáandi má láta framhjá sér fara.