Lýsing

Samspil glansandi spegilflata og málmkenndra gylltra áferða skapar lifandi ljósspeglanir sem færa rýminu dýpt og glæsileika, á meðan svartur fótur veitir styttunni fágaðan stöðugleika.
Bjallan er tákn styrks og umbreytingar og hentar einstaklega vel sem áberandi skreyting á skenk, console borði eða í hillu. Hver stytta er handunnin af kostgæfni og þar af leiðandi einstök, sem bætir heimilinu persónuleika og karakter – sérstaklega falleg í samspili við dökka liti, glerfleti eða náttúrustein.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 15cm x B: 19.5cm x H: 44.5cm
Vörumerki
Tegund
Vörusafn
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.