Sýni 757–768 af 2323 niðurstöðumRaðað eftir vinsældum

Swan borðstofustóll Kenny dökkgrár

Á lager

Swan borðstofustóllinn er nútímalegur og fágaður stóll sem setur glæsilegan svip á hvaða borðstofurými sem er. Hann er klæddur dökkgráu gervileðri og stendur á svörtum málmfótum sem passa fullkomlega við nútímaleg heimili. Mjúk setan og stuðningsríkt bak tryggja þægindi – hvort sem um er að ræða fjölskyldumáltíðir eða gestaboð.

Nola sjónvarpsskápur svört eik

Á lager

Einstaklega stílhreinn og flottur sjónvarpsskápur í Nola línunni frá Unique furniture. Skápurinn er úr svörtum eikarspóni með svarta málmfætur. Hann opnast með rennihurðum sem geta opnast alveg að framan, á hliðum og að baki.

Nola línan er sérlega falleg. Húsgögnin eru gerð úr eikarspóni og hafa þau náttúrulega mjúkar línur. Borðin standa flest á stöpli úr sama efni en skápar og skenkar hafa svarta málmfætur. Útlit Nola línunnar er létt og stílhreint.

Skápar og skenkar í Nola línunni hafa rennihurðir, sem spara vissulega pláss og opnast auk þess nær allan hringinn (alveg að framan og alveg á hliðunum aftur að baki en sófaborðið með hurðunum opnast þó allan hringinn), sem veitir vissulega aðgang að innra rými til hins ítrasta. Hurðirnar hafa fallega rimla eins og stöplar borðanna en það gefur Nola línunni þetta létta en samt sérkennandi útlit.

Nola línan er einföld í samsetningu og fást húsgögn línunnar í þremur viðaráferðum; náttúrulegri, reyktri  eða svartri eik. Hver áferð hefur sinn einstaka stíl.

Pinto hornsófi hægri Kentucky 01 antrazit

Á lager

Vandaður hornsófi í Pinto línunni, hér í Kentucky antrazít gráu áklæði. Sófinn er með hægra horni (hornið er hægra megin þegar horft er framan á sófann) og sameinar stílhreint útlit og góð setþægindi. Fæst einnig sem vinstri hornsófi og í fleiri útfærslum.

Boggie stóll Austin Flamingo Bb

Á lager

Boggie hægindastóll er fágaður og nettur stóll klæddur slitsterku Austin áklæði. Bak stólsins er skreytt samlitum hnöppum sem setja sterkan svip á útlitið, á meðan háir fætur úr svörtum viði halda hönnuninni léttri og stílhreinni. Stóllinn er fallegur með Boggie sófa, stakur eða með öðrum sófum. Hér sýndur í bleiku Flamingo bláu áklæði.