Broste Florentina vasi beige H:32cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Glæsilegur vasi sem sameinar mjúkar línur og nútímalega hönnun.
Vörunúmer
14445444
Flokkur: Skrautmunir
Lýsing
Lífrænt formið og breiður, bylgjóttur kanturinn gefa vasanum einstakan karakter og gera hann að fallegum miðpunkti í hvaða rými sem er. Hann er úr hágæða steinleir með glansandi áferð í hlýjum beige lit sem fellur vel að bæði nútímalegum og klassískum rýmum. Hentar jafnt fyrir fersk blóm og þurrskreytingar eða sem sjálfstætt skraut. Tilvalinn á borð, skenk eða í gluggakistu þar sem hann nýtur sín best.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 24cm x B: 24cm x H: 32cm |
|---|---|
| Vörusafn | Brúðkaupsgjafir |
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll.
Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn.
Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum.
Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.


