Broste Hune hnífapör matt stál f/4

Hnífapörin frá Broste eru úr 18/8 ryðfríu stáli.  Það má setja þau í uppþvottavél en við mælum með mildu þvottaefni.

Vörunúmer 14479048 Flokkur: Merkimiði:
Lýsing

18/8 er mælikvarði á styrkleika stáls og sýnir hlutfall nikkels og króms sem notað er til að framleiða málminn.  18/8 ryðfrítt stál inniheldur 18% króm og 8% nikkel.  Restin af málminum er hreint stál.  Mismunandi magn nikkels og króms hefur áhrif á styrk stálsins og tæringareiginleika.  Þetta hlutfall er algengasta blandan sem notuð er við gerð hnífapara og fylgihluta.

Frekari upplýsingar
LiturStál
Tegund
Söluflokkur
Vörumerki
Vörulína
Vörusafn
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll. Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn. Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum. Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.