Broste Nordic Rain diskur Ø20 cm

Fallegur diskur úr steinleir með reactive glerungi sem skapar mjúkar og náttúrulegar litabreytingar. Fullkominn fyrir eftirrétti, létta rétti eða hádegismat – stílhrein lausn fyrir bæði daglega notkun og fallega framreiðslu.

Vörunúmer 14533523 Flokkur:
Lýsing

Nordic Rain línan er innblásin af síbreytilegum litbrigðum himinsins á gráum degi. Borðbúnaðurinn er með glansandi, endurunnum glerungi sem skapar fallegar og náttúrulegar litabreytingar í yfirborðinu, sem gerir hvert stykki einstakt. 

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 20cm x B: 20cm x H: 2.2cm
FrystirNei
OfnNei
ÖrbylgjuofnJá
UppþvottavélJá
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll. Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn. Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum. Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.