Broste Nordic Rain diskur Ø26 cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Stílhreinn og tímalaus matardiskur úr steinleir með endurunnum glerungi sem skapar mjúkar og náttúrulegar litabreytingar. Fullkominn fyrir aðalrétti og fallega framreiðslu – bæði til daglegrar notkunar og við sérstök tilefni.
Vörunúmer
14533524
Flokkur: Borðhald
Lýsing
Nordic Rain línan er innblásin af síbreytilegum litbrigðum himinsins á gráum degi. Borðbúnaðurinn er með glansandi, endurunnum glerungi sem skapar fallegar og náttúrulegar litabreytingar í yfirborðinu, sem gerir hvert stykki einstakt.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 26cm x B: 26cm x H: 2.5cm |
|---|---|
| Frystir | Nei |
| Ofn | Nei |
| Örbylgjuofn | Já |
| Uppþvottavél | Já |
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll.
Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn.
Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum.
Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.
