Broste Nordic Sea hitaplatti 2stk

Þessir fallegu hitaplattar sameina hagnýta notkun og stílhreina hönnun á einstaklega fallegan hátt. Lífræn og mjúk lögun þeirra gefur náttúrulegt yfirbragð sem minnir á form úr náttúrunni og skapar hlýlegt og lifandi útlit á borðinu.

Vörunúmer 14533506 Flokkur: Merkimiði:
Lýsing

Nordic Sea línan er ein af vinsælustu línunum og það er auðvelt að skilja hvers vegna. Hún sækir innblástur sinn í litróf Norðursjávar á sumardegi, þar sem dökkir himnar, hvít ský og bláir tónar mætast í mjúku og lifandi samspili – líkt og öldur og hvítfyssandi brim. Hönnunin er einföld og afslöppuð, en á sama tíma full af karakter.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 25cm x B: 19cm x H: 1.8cm
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll. Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn. Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum. Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.