Broste Nordic Vanilla hitaplatti 2stk

Þessir fallegu hitaplattar sameina hagnýta notkun og stílhreina hönnun á einstaklega fallegan hátt. Lífræn og mjúk lögun þeirra gefur náttúrulegt yfirbragð sem minnir á form úr náttúrunni og skapar hlýlegt og lifandi útlit á borðinu. 

Vörunúmer 14533508 Flokkur:
Lýsing

Nordic Vanilla línan heillar með mjúku og fáguðu yfirbragði sem minnir á kremkenndan vanilluís með örlitlum dökkum doppum líkt og vanillufræ. Litapallettan er hlý og létt, sem gefur borðinu rólega og aðlaðandi heildarmynd. Hönnunin endurspeglar einfaldleika og fágun þar sem minna er meira. Mjúkar línur og náttúruleg áferð skapa tímalausan stíl.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 25cm x B: 19cm x H: 1.8cm
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll. Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn. Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum. Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.