Broste Olina skurðarbretti 28,5×46,5 cm

Skurðarbretti úr fallegri olíuborinni eik sem sameinar náttúrulegt útlit og hagnýta hönnun.

Vörunúmer 57000030 Flokkur:
Lýsing

Hlý viðaráferðin gefur eldhúsinu notalegan og stílhreinan svip, á meðan vönduð hönnun tryggir endingu og áreiðanleika í daglegri notkun. Brettið er með þægilegu handfangi sem auðveldar meðhöndlun og gerir það einnig hentugt til framreiðslu á brauði, ostum eða öðrum smáréttum. Rauf meðfram brúninni safnar vökva og heldur vinnusvæðinu snyrtilegu. Fullkomið fyrir bæði matreiðslu og framreiðslu – praktískt og fallegt í senn.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 46.5cm x B: 28.5cm x H: 2cm
Vörusafn
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll. Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn. Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum. Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.