Broste Vig eldfast mót 25,5×16,5 Stoneware svart
Skráðu þig inn til að sjá verð
Eldfast mót frá Broste í antíksvörtum lit. Það gerir mikið fyrir matinn að vera borinn fallega fram og Vig línan býður okkur svo sannarlega velkomin að matarborðinu með töffaralegu yfirbragði. Má fara í ofn, uppþvottavél og meira að segja í frystinn!
Lýsing
Hagnýtt og stílhreint ofnmót sem hentar fullkomlega fyrir alls konar bakstur og eldamennsku – allt frá lasagna og gratíni til brauða og eftirrétta. Hagnýtt og stílhreint ofnmót sem hentar fullkomlega fyrir alls konar bakstur og eldamennsku – allt frá lasagna og gratíni til brauða og eftirrétta. Einföld hönnun og djúpt form gera það bæði notadrjúgt og fallegt til framreiðslu beint á borð.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 16.5cm x B: 25.5cm x H: 6.5cm |
|---|---|
| Litur | Svartur |
| Tegund | Eldföst mót |
| Söluflokkur | Veitingastaðir |
| Vörumerki | Broste Copenhagen |
| Vörulína | Vig |
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll.
Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn.
Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum.
Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.
