Broste Vig eldfast mót Ø29cm Stoneware svart

Stílhreint og endingargott bökunarmót sem hentar fullkomlega fyrir tertur, bökur og aðra ofnrétti. Riffluð brúnin gefur fallega og faglega áferð á baksturinn og gerir framreiðsluna sérstaklega glæsilega.

Vörunúmer 55000011 Flokkur: Merkimiði:
Lýsing

Framleitt úr gljáðum steinleir sem dreifir hita jafnt og tryggir góða bökunarárangur. Sterkt og fallegt mót sem sameinar notagildi og klassíska hönnun í eldhúsinu.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 29cm x B: 29cm x H: 4.5cm
LiturSvartur
Tegund
Söluflokkur
Vörumerki
Vörulína
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll. Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn. Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum. Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.