Iittala Festivo kertastjaki m/stáli 12cm

Festivo kertastjakinn er sannkölluð hönnunarperla sem á sér einstaka sögu í finnskri hönnunarsögu.

Vörunúmer 1023745 Flokkur:
Lýsing

Upprunalega hannaði Timo Sarpaneva Festivo sem vínglas fyrir eigin notkun með það að markmiði að rúma heila vínflösku í einu glasi. Gróft og ískennt glerið ásamt sérblásnum hlutum sköpuðu einstaka hönnun sem síðar varð innblástur að kertastjakanum þegar botnhlutarnir stóðu einir og sér í verksmiðjunni. Úr varð Festivo kertastjakinn – tímalaus klassík sem hefur verið í framleiðslu síðan árið 1967 og hefur fest sig í sessi sem eitt þekktasta tákn finnskra heimila. Einkennandi glerhringirnir minna á ís og kristalla og skapa fallegt birtuspil sem gerir stjakann að bæði skrauthlut og hönnunarverki.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 8cm x B: 8cm x H: 12cm
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.