Iittala Kastehelmi kertastjaki 6,4cm glær
Skráðu þig inn til að sjá verð
Einstaklega fallegur glær kertastjaki í Kastehelmi línunni frá iittala. Ø: 75 mm. H: 64 mm. Kemur í mörgum fallegum litum. Kastehelmi kertastjakinn smellpassar fyrir sprittkerti. Kertastjakann þarf að handþvo. Hönnuður: Oiva Toikka.
Þegar Toikka leitaði leiða til að fela samskeyti í gleri varð til hið einkennandi mynstur af upphækkuðum glerdropum sem minna á döggdropa sem glitra í morgunsólinni. Nafnið Kastehelmi, sem þýðir „döggdropi“ á finnsku, endurspeglar fullkomlega þessa fallegu hugmynd. Glerdropamynstrið leikur sér með birtuna og dregur fram náttúrulega fegurð glersins á einstakan hátt. Þegar kveikt er á kerti myndast hlý og notaleg stemning þar sem ljósið endurkastast fallega í gegnum mynstrið.
| Vörumerki | Iittala |
|---|---|
| Litur | Glær |
| Tegund | Kertastjakar |
| Vörulína | Kastehelmi |


