Iittala Kastehelmi kertastjaki 6,4cm grár
Skráðu þig inn til að sjá verð
Kastehelmi sprittkertastjakinn sameinar einstaka hönnun Oiva Toikka og innblástur úr finnskri náttúru.
Fæst í mörgum litum og er tilvalin gjöf.
Vörunúmer
5111007583
Flokkur: Skrautmunir
Lýsing
Þegar Toikka leitaði leiða til að fela samskeyti í gleri varð til hið einkennandi mynstur af upphækkuðum glerdropum sem minna á döggdropa sem glitra í morgunsólinni. Nafnið Kastehelmi, sem þýðir „döggdropi“ á finnsku, endurspeglar fullkomlega þessa fallegu hugmynd. Glerdropamynstrið leikur sér með birtuna og dregur fram náttúrulega fegurð glersins á einstakan hátt. Þegar kveikt er á kerti myndast hlý og notaleg stemning þar sem ljósið endurkastast fallega í gegnum mynstrið.
Frekari upplýsingar
| Vörumerki | Iittala |
|---|---|
| Litur | Grár |
| Tegund | Kertastjakar |
| Vörulína | Kastehelmi |
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi.
Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.



