Iittala Mariskooli skál 15,5cm glær

Mariskooli skálin er ein af þekktustu og ástsælustu hönnunarklassíkum Finnlands og hefur um áratugaskeið verið fastur hluti af heimilum víðs vegar um landið. Tímalaus hönnun hennar og falleg smáatriði hafa einnig gert hana að vinsælum safngrip meðal hönnunarunnenda.

Vörunúmer 1007062 Flokkur:
Lýsing

Tært glerið dregur fram hina einkennandi bylgjóttu brún skálarinnar ásamt fíngerðum rifflum sem skreyta bæði stilkinn og fótinn. Þessi leikandi smáatriði gefa Mariskooli einstakan karakter og gera hana jafn fallega sem skrautmun og til daglegrar notkunar. Skálin hentar fullkomlega til að bera fram hnetur, sælgæti og aðra smárétti, en nýtur sín einnig einstaklega vel sem eftirréttaskál fyrir ís, búðing, ávexti eða glæsilegan ísrétt. Hrein og fáguð hönnun hennar fellur að öllum borðdekkingum og tilefnum.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 12.4cm x B: 12.4cm x H: 15.5cm
Vörusafn
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.