Iittala Moomin krús Muskrat beige
Skráðu þig inn til að sjá verð
Bísamrottan Muskrat er gamall heimspekingur sem les myrkar, heimspekilegar bækur og deilir bölsýnisskoðunum sínum með öðrum.
Vörunúmer
MOO1069393
Flokkur: Borðhald
Lýsing
Bísamrottunni líkar vel að eyða tíma sínum í hengirúmi Múmínfjölskyldunnar, þar sem hann les sína uppáhaldsbók, iðulega umvafinn teppi. Hans versti ótti er að tapa sæmd sinni, sem því miður gerist ítrekað í Múmínhúsinu. Til gamans má geta að þetta er í fyrsta sinn sem að Bísamrottan fær svona stórt hlutverk í Moomin borðbúnaðinum frá Arabia.
Frekari upplýsingar
| Vörumerki | Moomin |
|---|---|
| Tegund | Bollar |
| Vörusafn | Allt fyrir borðhaldið |
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi.
Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.
