Iittala Moomin krús Sniff blue
Skráðu þig inn til að sjá verð
Ein dáðasta persóna Múmíndals, Sniff Blue eða Snabbi er í aðalhlutverki en sagan að baki myndskreytingunni hefst þegar hús Múmínsnáðans hrynur og Snabbi kemur vini sínum til bjargar. Söguþráðurinn fylgir þeim félögum þar sem þeir reyna að verða ríkir með hinum ýmsu ráðum svo Múmínsnáði geti byggt sér nýtt hús. Þeir félagar hafa ekki þak yfir höfuðið og því dorma þeir gjarnan á ströndinni – þaðan kemur hugmyndin að myndskreytingunni.
Sniff er oft fyrstur til að láta sig dreyma um spennandi uppgötvanir, en jafnframt fyrstur til að verða smeykur þegar hættan nálgast. Hann dreymir um að verða ríkur og frægur og heillast af öllu sem glitrar og skín. Gull, gimsteinar og fjársjóðir vekja sérstaka athygli hans og hann sér gjarnan fyrir sér stórkostleg ævintýri sem leiða hann til frægðar og gæfu.
| Vörumerki | Iittala |
|---|---|
| Tegund | Bollar |
| Vörusafn | Allt fyrir borðhaldið |
