Kare Artistic Line mynd 70x110cm

Þessi handmálaða mynd færir heimilinu listrænan blæ og einstaka stemningu með sínum abstrakt línum og fáguðu litavali. Samspil sem skapar rólegt en áhrifaríkt yfirbragð sem gefur rýminu dýpt og persónuleika án þess að vera yfirgnæfandi.

Vörunúmer 57006 Flokkur:
Lýsing

Málverkið er unnið með olíulitum á hágæða striga úr bómull og hör, sem gefur yfirborðinu fallega áferð og undirstrikar handverkið á bak við hvert verk. Hver mynd er því einstök og ber með sér sinn eigin karakter og smáatriði sem gera hana að sannkölluðu listaverki á veggnum. Hún hentar vel í stofu, svefnherbergi eða vinnuaðstöðu þar sem hún skapar rólegt og innblásið andrúmsloft.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 4.3cm x B: 73cm x H: 113cm
Vörumerki
Tegund
Vörusafn
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.