Kare Bella spegill svartur 77x173cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Veggspegill með svörtum ramma sem sameinar tímalausa hönnun og hreinar línur. Grannur svartur málmramminn og mjúklega rúnuð horn gefa speglinum fágað og nútímalegt yfirbragð sem fellur vel að fjölbreyttum innréttingastílum.
Vörunúmer
70570
Flokkur: Veggmunir
Lýsing
Stór spegilflöturinn endurkastar birtu og getur látið rýmið virðast bæði bjartara og rúmbetra. Spegilinn má hengja lóðrétt í forstofu eða svefnherbergi sem heilspegil, en hann nýtur sín einnig vel sem áberandi innréttingaratriði í stofu. Einföld hönnunin passar sérstaklega vel með hreinum línum, hlutlausum litatónum og möttum áferðum.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 5cm x B: 77cm x H: 173cm |
|---|
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.

