Kare Bollie borðlampi beige 33cm

Gler, tært. Standur úr steinsteypu. Svört plasteinangruð snúra, 150 cm, með línurofa. Lampskermur 16 cm í þvermál, standur 16–10,5 cm. Afhent að hluta til ósamsett.

Vörunúmer 56102 Flokkur:
Lýsing

Þessi netti LED-lampi er fullkomin lausn fyrir ýmis rými. Bollie hentar jafnt sem náttlampi í svefnherbergi, stemningsljós í forstofu eða sem borðlampi í stofu – hvort sem hann stendur í hillu, á hliðarborði eða skenk.
Lampinn er léttur (aðeins 1,1 kg) og því auðvelt að færa hann til eftir þörfum. Með nútímalegri, skandinavískri hönnun og skýrum, mínimalískum formum sameinar þessi hönnunarlampi frá KARE stíl, tímalausa fegurð og notagildi í einum hlut.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 16cm x B: 16cm x H: 31cm
Vörumerki
Tegund
Vörusafn
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.