Kare Dusty horizon mynd 50x80cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Falleg og nútímaleg abstrakt strigamynd sem færir rýminu hlýlegt og rólegt yfirbragð.
Vörunúmer
57866
Flokkur: Veggmunir
Lýsing
Mjúkir jarðlitir í brúnum, beige og gráum tónum skapa dýpt og áhugaverða áferð sem gefur veggnum listrænan karakter. Myndin er handmáluð með akrýlmálningu á bómullarstriga og því er hvert eintak einstakt. Striginn er spenntur á traustan viðarramma og hægt er að hengja myndina bæði lárétt og lóðrétt eftir því sem hentar rýminu best.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 3cm x B: 50cm x H: 80cm |
|---|---|
| Tegund | Myndir |
| Vörusafn | Brúðkaupsgjafir, KARE – Húsgögn |
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.

