Kare Favola apple bolli m/undirskál

Fallegt sett með kaffibolla og samsvarandi undirskál sem gerir kaffistundina enn notalegri.

Vörunúmer 56351 Flokkur:
Lýsing

Hönnunin sameinar vönduð efni, handmáluð smáatriði og stílhreint yfirbragð sem gerir hvert sett að litlu listaverki á borðinu. Fullkomið fyrir notalegar kaffistundir heima eða sem sérstök gjöf fyrir kaffi- og teunnendur. Bollarnir eru úr postulíni og henta bæði í örbylgjuofn og uppþvottavél.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 19cm x B: 19cm x H: 6.5cm
Vörusafn
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.