Kare Gentleman dog stytta 51cm

Skemmtilegur og karakterríkur hönnunargripur sem setur óvæntan og fágaðan svip á heimilið. Hundurinn er glæsilega klæddur í græn jakkaföt með bindi og stendur herralegur með krosslagða arma.

Vörunúmer 58679 Flokkur:
Lýsing

Vönduð smáatriði í fatnaði, andliti og áferð gefa henni lifandi og sérstæðan karakter. Hún nýtur sín vel á skenk, hillu, hliðarborði eða öðrum áberandi stað og er tilvalin fyrir þá sem vilja bæta smá húmor og persónuleika við innréttingarnar.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 15cm x B: 16.5cm x H: 51cm
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.