Kare Glam dots hvítvínsglas silfur
Skráðu þig inn til að sjá verð
Glæsilegt hvítvínsglas sem bætir fáguðum og léttum glamúr við borðhald. Tært glerið er skreytt með fíngerðum silfurlituðum doppum sem glitra mjúklega í ljósinu og skapa fallegt og stílhreint yfirbragð.
Vörunúmer
58029
Flokkur: Borðhald
Lýsing
Hönnunin er tímalaus og passar jafnt við hátíðleg tilefni sem og hversdagslega notkun. Glasið nýtur sín sérstaklega vel í samspili við náttúruleg efni, lín eða málmáherslur í kopar og svörtu. Mælt er með handþvotti til að varðveita gæði.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 8cm x B: 8cm x H: 21cm |
|---|---|
| Vörusafn | Brúðkaupsgjafir |
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.
