Kare Glam dots kampavínsglas silfur

Glæsilegt kampavínsglas sem setur fágaðan og hátíðlegan svip á borðhald. Tært glerið er skreytt með fíngerðum silfurlituðum doppum sem glitra mjúklega í ljósinu og gefa glasinu létt og elegant yfirbragð.

Vörunúmer 58023 Flokkur:
Lýsing

Létt og falleg lögun glersins gerir það fullkomið fyrir freyðivín og aðra hátíðlega drykki, hvort sem er við sérstök tilefni eða til að gera hversdagsleg augnablik aðeins glæsilegri. Það nýtur sín sérstaklega vel í samspili við náttúruleg efni, lín eða málmáherslur í kopar og svörtu. Mælt er með handþvotti til að varðveita gæði

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 6.4cm x B: 6.4cm x H: 24.5cm
Vörumerki
Tegund
Vörusafn
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.