Kare Gloria hnífaparasett f/4 matt gyllt
Skráðu þig inn til að sjá verð
Klassískt og fallegt hnífaparasett sem gefur borðinu glæsilegan blæ. Settið er úr ryðfríu stáli með brasshúðun.
Vörunúmer
52631
Flokkur: Borðhald
Lýsing
Athugið að ekki má setja hnífapörin í uppþvottavél þar sem þau sterku efni sem notuð eru þar geta leyst upp brasshúðunina.
Settið samanstendur af fjórum göfflum, fjórum hnífum, fjórum súpuskeiðum og fjórum teskeiðum
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 25cm x B: 14.2cm x H: 6cm |
|---|---|
| Vörumerki | Kare Design |
| Tegund | Hnífapör |
| Vörulína | Gloria |
| Vörusafn | Allt fyrir borðhaldið, Brúðkaupsgjafir, KARE – Smávörur |
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.
