Kare Hand skrautskál gyllt 30cm

Tvær gylltar hendur sem mynda litla fallega skrautskál.

Vörunúmer 57890 Flokkur:
Lýsing

Einstök skrautskál sem er mótuð í formi tveggja handa. Glansandi gulláferð gefur henni glæsilegt og áberandi yfirbragð.
Skálin hentar jafnt sem skrautmunur eða sem skál fyrir smáhluti. Hún verður fallegur fókus á borði, hillu eða kommóðu.
Tímalaus og fáguð hönnun sem gefur rýminu karakter.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 26cm x B: 29.5cm x H: 11.7cm
Vörumerki
Tegund
Vörusafn
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.