Kare Hot lips stytta bleik 26cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Þessi skemmtilega stytta í formi vara er sannkallað statement í hvaða rými sem er. Glansandi, djúpbleikur liturinn dregur strax athygli að sér og gefur rýminu líf, orku og skemmtilegan „pop art“ blæ.
Vörunúmer
58370
Flokkur: Skrautmunir
Lýsing
Formið er mjúkt og skúlptúral, þar sem hálfopnar varirnar skapa bæði dýpt og hreyfingu í hönnuninni. Hluturinn virkar jafnt sem listaverk og skraut, hvort sem hann er settur á hillu, kommóðu eða borð, og hentar sérstaklega vel í nútímaleg, skapandi eða litaglöð heimili.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 20cm x B: 25.5cm x H: 23cm |
|---|---|
| Tegund | Styttur |
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.




