Kare Loungy borðlampi sage 38cm

Loungy borðlampinn sameinar nútímalega hönnun og tímalausan stíl. Mjúk, sveppalaga lögunin og fallegi sage-græni liturinn skapa hlýlega og notalega stemningu í rýminu.

Vörunúmer 56523 Flokkur:
Lýsing

Lampinn hentar fullkomlega á náttborð, hliðarborð, skrifborð eða kommóðu þar sem hann myndar fallega ljósstemningu. Lampinn er framleiddur úr lökkuðu stáli sem tryggir góð gæði og endingu. Hringlaga lampaskermurinn beinir ljósinu niður á við og skapar mjúkt og notalegt ljós sem passar vel í svefnherbergi, stofu eða gang.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 25cm x B: 25cm x H: 38cm
Vörumerki
Vörusafn
Tegund
PeraFylgir ekki
Max W40W
PerustæðiE27
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.