Kare Loungy borðlampi svartur 40cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Þessi stílhreini lampi er í skínandi djúpsvörtum lit með gylltri innri húðun og því verður áferðin svargyllt. Lampaskermurinn er gylltur að innan og gefur borðlampinn frá sér hlýja lýsingu. Flottur lampi sem miðpunktur og passar fullkomlega inn í hvaða innréttingarstíl sem er, þökk sé tæru, tímalausu formi.
Vörunúmer
32203
Flokkur: Ljós
Lýsing
Þessi stílhreini borðlampi í djúpum, glansandi svörtum lit með gylltum áherslum er glæsileg viðbót inná hvert heimili. Hann skapar strax einstaka og fágaða stemningu og verður áberandi augnayndi í rýminu.
Lampinn hentar fullkomlega á borð, skenk eða í hillu þar sem hann setur kaldar, nútímalegar áherslur og undirstrikar sterkan hönnunarkarakter innréttingarinnar.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 25cm x B: 25cm x H: 40cm |
|---|---|
| Vörumerki | Kare Design |
| Tegund | Borðlampar |
| Vörusafn | Brúðkaupsgjafir, KARE – Húsgögn |
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.

