Kare Loungy borðlampi terra 38cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Loungy borðlampinn sameinar klassíska hönnun og nútímalegt útlit. Sveppalaga formið og hlýi terracotta liturinn skapa notalega stemningu og gera lampann að fallegum hlut á heimilinu.
Vörunúmer
56525
Flokkur: Ljós
Lýsing
Hann hentar vel á náttborð, hliðarborð, skrifborð eða kommóðu þar sem hann myndar mjúka og hlýlega ljósstemningu. Lampinn er úr lökkuðu stáli sem tryggir góða endingu og vandaða framleiðslu. Hringlaga skermurinn beinir ljósinu niður á við og skapar þægilegt ljós sem hentar vel í svefnherbergi, stofu eða gang.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 25cm x B: 25cm x H: 38cm |
|---|---|
| Vörumerki | Kare Design |
| Tegund | Borðlampar |
| Vörusafn | Brúðkaupsgjafir, KARE – Húsgögn |
| Pera | Fylgir ekki |
| Perustæði | E27 |
| Max W | 40W |
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.
