Kare Nube borðlampi svartur 48cm

Lampi með stál- og álrömmum, handunnið. Skermur 30 cm í þvermál, 200 cm textílsnúra með línurofa. Afhent ósamsett.

Vörunúmer 56519 Flokkur:
Lýsing

Nube borðlampi – innblásinn af náttúrulegum formum. Lífræn form skapa rýmum sérstaka ró og samhljóm sem sækir innblástur í náttúruna. Við hönnun Nube-lampans sótti hönnunarteymi KARE innblástur í steina sem hafa mótast í mjúkar, ávalar línur af völdum náttúrunnar.
Með 48 cm hæð fellur þessi fallega mótaði borðlampi vel á skenka, kommóður í forstofu eða náttborð. Vandað efnisval og tímalaus, en um leið nútímaleg hönnun gera svarta Nube lampann að stílhreinni og áberandi viðbót sem lýsir upp og fullkomnar rýmið.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 30cm x B: 30cm x H: 48cm
Vörumerki
Tegund
Vörusafn
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.