Kare Possibilita borðstofuborð 180x120cm svart
Skráðu þig inn til að sjá verð
Glæsilegt sporöskjulaga borðstofuborð með keramik borðplötu og fæti úr duftlökkuðu áli.
Vörunúmer
85735
Flokkur: Borð
Lýsing
Þetta sporöskjulaga borð er einstakelga fallegt í hvaða stofu eða borðstofu sem er. Klassísk lögunin heldur sér alltaf ferskri og nútímalegri, sporöskjulaga formið stuðlar að góðum samræðum við borðið og svarti liturinn blandast inn í hvaða innréttingastíl sem er. Keramíkborðplatan er einstaklega falleg. Borðið rúmar um það bil sex manns.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 180cm x B: 120cm x H: 73cm |
|---|---|
| Vörumerki | Kare Design |
| Tegund | Borðstofuborð |
| Vörusafn | Borðstofuhúsgögn, KARE – Húsgögn |
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.
